Frá haustinu 2017 hefur verið sameiginlegur matseðill fyrir alla leik- og grunnskóla í Fjarðabyggð. Matseðilinn rúllar á 7 vikna fresti og þeir sem sjá um matinn koma til með að hafa úr nokkrum uppskriftum að velja hvern dag. Við samsetningu matseðlana er farið eftir ráðleggingum frá landlæknisembættinu sem styðjast við samnorrænar næringarráðleggingar. Hér fyrir neðan er hægt að sjá matseðla fyrir hverja viku.
16. nóv. – Pasta með pylsum og beikoni, rjómasósu og hvítlauksbrauði.
17. nóv. – Grænmetisbuff með hrísgrjónum og súrsætri sósu.
18. nóv. – Gúllas með kartöflumús og grænmeti.
19. nóv. – Ofnbakaður fiskur með karrýsósu og hrísgrjónum.
20. nóv. – Hrært skyr og brauð með áleggi.
23. nóv. – Fiskur í raspi með soðnum kartöflum og hvítlaukssósu.
24. nóv. – Kjötbollur með kartöflumús og brúnni sósu. Samskiptadagur.
25. nóv. – Plokkfiskur með kartöflum, rúgbrauði og smjöri.
26. nóv. – Kjúklingaborgari með kartöflubátum og kokteilsósu.
27. nóv. – Íslensk kjötsúpa með snittubrauði.
30. nóv. – Vínarsnitsel með steiktum kartöflum og sveppasósu.
1. des. – Fiskibollur með soðnum kartöflum, gulrótum og feiti.
2. des. – Kjúklingur með karrýkókossósu og hrísgrjónum.
3. des. – Soðinn fiskur með kartöflum, tómatsósu, rúgbrauði og smjöri.
4. des. – Hrísgrjónagrautur með kanilsykri og slátri.
7. des. – Fiskur í deigi með kartöflubátum og kokteilsósu.
8. des. – Hakkabuff með soðnum kartöflum og brúnni sósu.
9. des. – Léttsaltaður þorskur með soðnum kartöflum, brokkolí og feiti.
10. des. – Grísasteik með steiktum kartöflum, grænmeti ásamt soðsósu.
11. des. – Blómkálssúpa með snittubrauði.