Við hvetjum alla nemendur og starfsmenn til að mæta í búning í þennan skóladaginn.
Um kvöldið fara börn og fullorðnir á milli húsa á Eskifirði klædd búningum í grikk eða gott. Kort af þeim stöðum sem taka á móti börnum og fullorðnum má finna hér.
Hrekkjavaka nefnist á enskri tungu Halloween sem er annar ritháttur fyrir Hallowe’en. Hallowe’en er svo stytting á nafninu All Hallows’ Evening eða All Hallows’ Eve sem er kvöldið 31. október
Hefð myndaðist fyrir því að á Samhain/Hallowe’en væri brennandi kertum komið fyrir í útskornum næpum og á Írlandi og í Skotlandi tíðkaðist að kveikja í bálköstum. Einnig fóru bæði unglingar og fullorðnir á milli húsa klæddir búningum og með grímur, eins og nú tíðkast á öskudegi Íslendinga, og gerðu öðrum gjarnan einhvern grikk í leiðinni.