Opinn dagur - Evrópski tungumáladagurinn

Opinn dagur í skólanum – Föstudaginn 19. september

Föstudaginn 19. september verður haldinn opinn dagur í skólanum.
Þennan dag hvetjum við foreldra til að koma og kíkja inn í kennslustundir.

Það verður ekki sérstök dagskrá heldur um að ræða hefðbundinn skóladag hjá nemendum.
Foreldrum er frjálst að fara inn í hvaða kennslustofu sem þeir kjósa og dvelja þar eins lengi og þeim hentar.

Við hlökkum til að sjá sem flesta!