10. bekkur heimsótti Alcoa Fjarðaál

Í gær, 21. maí, fóru nemendur í 10. bekk í fræðslu- og skoðunarferð í Alcoa Fjarðaál ásamt kennurunum Heiði Dögg og Antoni Bjarna.

Alcoa Fjarðaál er stærsta álver landsins og getur framleitt allt að 360 þúsund tonn af áli á ári. Nemendur fengu innsýn í starfsemi álversins og fræddust um framleiðsluferlið og þau fjölbreyttu störf sem þar eru unnin.

Boðið var upp á áhugaverðar skoðunarferðir um kerskálann, steypuskálann og skautsmiðjuna þar sem nemendur fengu að sjá starfsemina í framkvæmd og kynnast tækninni og vinnuumhverfinu á staðnum. Ferðin tókst afar vel og var bæði fróðleg og skemmtileg fyrir hópinn.