5. bekkur í náttúrufræði í Rjóðrinu

Texti með fréttamynd
Texti með fréttamynd

Í dag fóru Eydís og Valla með 5.bekk í náttúrufræði í Rjóðrið. Á leiðinni tíndum við laufblöð og sveppi en við höfum verið að fræðast um skóga, tré og sveppi í náttúrufræðibókinni okkar í vikunni. Allir voru duglegir og áhugasamir og tíndu heilan helling. Við spáðum og spekúleruðum í hinum ýmsu jurtum, laufblöðum og sveppum. Við munum svo í næstu viku skoða laufblöðin betur og greina þau með greiningarlyklum. Einnig ætlum að skoða sveppina í víðsjá og fletta þeim upp í sveppabók sem einn nemandi okkar var svo góður að koma með. Við tókum auðvitað fullt af myndum.  Frábær tími í góðu veðri með flottum krökkum.