Bekkjarhátíð Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk
Þann 25. mars komu nemendur 7. bekkjarins okkar saman í sal skólans. Tilefnið var hátíðlegt, bekkjarhátíð Stóru upplestrarkeppninnar.
Nemendur höfðu frá Degi íslenskrar tungu æft fallegan og áheyrilegan lestur undir stjórn kennara síns, Ásdísar Hauksdóttur. Æfingar gáfu góða raun, framfarir mjög sýnilegar og alvaran og vandvirknin sífellt meiri eftir því sem bekkjarhátíðin nálgaðist.
Hátíðin tókst einstaklega vel, nemendur skilaðu sínum vandaða upplestri til ættingja og gesta í salnum. Það var til mikils að vinna því valdir voru þrír fulltrúar bekkjarins til að taka þátt í lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar hér í Fjarðabygggð. Einnig voru þrír varamenn fulltrúanna valdir. Það má því með sanni segja að erfitt verk hafi beðið dómaranna að þurfa að velja aðalmenn úr flottum hópi lesara.
Fulltrúar 7. bekkjar Eskifjarðarskóla í lokakeppnina sem haldin verður 14. apríl í Eskifjarðarkirkju eru: Sara Antonía Friðþjófsdóttir, Svanlaug Kara Þórhallsdóttir og Hrafntinna Georgsdóttir. Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn sem og þeim Andreu Ísold Sigurjónsdóttur, Erlu Dröfn Guðjónsdóttur og Hauki Guðna Hlynssyni sem valin voru þeirra varamenn. Það voru sannarlega allir sem þátt tóku sigurvegarar bekkjarhátíðarinnar, það var sómi að upplestri allra.
Í lok hátíðarinnar settust svo keppendur og gestir að Pálínuboði foreldra og var enginn svikinn að þeim kræsingum sem boðið var upp á. Við þökkum foreldrum innilega þeirra hlut í vel heppnaðir lestrarstund.
Hægt er að skoða myndir hér.
|
Lambeyrarbraut 16 | 735 Eskifjörður Sími á skrifstofu: 4709150 Netfang: sigrun@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Símtölum í síma 470-9150 er svarað frá 7:45 til 13:30. |
Tilkynningar um veikindi nemenda: Á mentor síðu nemenda/ í síma:470-9150/ email: olla@skolar.fjardabyggd.is