Skólaslit Eskifjarðarskóla 2025

Þann 5. júní voru haldin hátíðleg skólaslit í sal skólans fyrir nemendur í 1. - 9. bekk. Síðustu nemendadagar voru uppbrotsdagar sem alla jafna er lögð áhersla á útivist og vorverkunum gerð góð skil. Veðrið var okkur ekki hliðhollt í ár og vordagarnir haldnir innandyra með allskonar fjölbreyttum smiðjum og verkefnum.

Sigrún Traustadóttir setti hátíðina og talaði um gildi skólans sem eru áberandi á nýju listaverki á skólalóðinni. Myllan er merki Eskifjarðarskóla og hefur lengi verið auðkenni Eskifjarðar. Við sungum skólasöng Eskifjarðarskóla sem Guðmann Þorvaldsson kennari við skólann til margra ára á heiðurinn af. Hann samdi fallegt lag og texta sem byggður er á hinum fjórum einkunnarorðum skólans en þau eru: Færni, virðing, þekking og áræði. Við syngjum þennan söng við hentug tækifæri í skólanum og vekjum þannig athygli á þeim gildum sem við viljum standa fyrir í starfi okkar.

Viðlag:

Vinnum hér saman af virðingu og dug

til verkanna göngum með jákvæðan hug.

 

Guðmann Þorvaldsson hefur starfað í Eskifjarðarskóla í 46 ár og kvaddi skólann á skólaslitunum. Við þökkum honum fyrir ánægjulegt samstarf í gegnum árin og óskum honum velfarnaðar í næstu verkefnum. Að lokum fengu nemendur í öllum bekkjum vitnisburðarblað frá kennara sínum.  

 

Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn.