Dagana 20. og 21. október voru haldnir þemadagar í Eskifjarðarskóla þar sem þemað að þessu sinni var „Löndin okkar“. Í skólanum eru nemendur frá 17 ólíkum löndum og var því tilvalið að nýta tækifærið til að kynnast ólíkum löndum, menningu og þjóðarhefðum. Nemendur unnu fjölbreytt og skapandi verkefni tengd þemanu og var margt skemmtilegt í boði.
Á miðvikudeginum var einnig Bleiki dagurinn og setti bleiki liturinn skemmtilegan svip á skólastarfið. Nemendur og starfsfólk klæddust bleiku til að sýna samstöðu og stuðning við baráttuna gegn krabbameini.
Þemadögunum lauk með sýningu þar sem foreldrum var boðið að koma og skoða afrakstur vinnu nemenda. Í kjölfarið var haldið skólaþing undir yfirskriftinni „Öruggur skóli - sameiginleg ábyrgð“. Þar komu saman nemendur í 5.–10. bekk, foreldrar og starfsfólk skólans til að ræða forvarnir, líðan, samskipti og heilbrigðar venjur. Umræður fóru fram í hópum þar sem þátttakendur svöruðu spurningum og komu með hugmyndir að því hvernig stuðla mætti að öruggara og betra skólaumhverfi. Um 40 foreldrar mættu á skólaþingið, sem er afar ánægjuleg þátttaka. Margar góðar hugmyndir komu fram og var gaman að sjá hversu virkir allir voru í umræðunum.
Á föstudeginum fengu nemendur í 1.–4. bekk einnig skemmtilega heimsókn í kirkjuna þar sem þau sóttu fræðsluerindi á vegum Þjóðaróperunnar. Þar fengu nemendur tækifæri til að kynnast óperulistinni og fræðast um þennan spennandi heim tónlistar og leiklistar.
Vikunni lauk svo með degi myrkurs, en sú skemmtilega hefð hefur skapast í Eskifjarðarskóla að nemendur mæti í svörtum fötum og taki þátt í Olsen Olsen. Þar etja eldri og yngri nemendur kappi í skemmtilegri keppni sem vekur jafnan mikla lukku.
Við þökkum nemendum og starfsfólki fyrir frábæra þátttöku í þemavikunni og foreldrum fyrir góða mætingu á sýninguna og skólaþingið.
Hægt er að skoða myndir frá vikunnni hér.
|
Lambeyrarbraut 16 | 735 Eskifjörður Sími á skrifstofu: 4709150 Netfang: sigrun@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Símtölum í síma 470-9150 er svarað frá 7:45 til 13:30. |
Tilkynningar um veikindi nemenda: Á mentor síðu nemenda/ í síma:470-9150/ email: olla@skolar.fjardabyggd.is