Foreldrakönnun Skólapúlsins febrúar 2024

Foreldrakönnun Skólapúlsins hefur nú verið send á þá foreldra sem lentu í úrtaki að þessu sinni. Skólinn notar kannanakerfi Skólapúlsins til að fylgjast með og bæta innra starf skólans. Liður í því er að spyrja foreldra í skólanum um gæði skólans, samskipti við skólann, virkni í skólastarfi og námið heima fyrir. Niðurstöður á yngsta, mið- og elsta stigi eru birtar með samanburði við landsmeðaltal í mars svo lengi sem 80% svarhlutfalli hafi verið náð.

Við viljum því hvetja foreldra til að svara könnuninni svo að skólinn geti nýtt úrvinnslu og niðurstöður Skólapúlsins til að bæta skólastarfið. Könnunin er opin til 29.febrúar.