Fræðsla um eldvarnir

Í nóvember fékk 3. bekkur heimsókn frá slökkviliðinu þar sem nemendur fengu fræðslu um eldvarnir. Að lokinni fræðslunni fengu þeir getraun til að leysa, sem síðan var send til slökkviliðsins til að taka þátt í útdrætti.

Þann 28. apríl, kom Villi frá slökkviliðinu í heimsókn til okkar og tilkynnti að Aron Einar Telmuson hefði verið dreginn út sem sigurvegari. Villi afhenti honum verðlaunin við það tilefni.