Gamla skólabjallan á leiðinni heim

Gamla skólabjallan á leiðinni heim

 

Það hefur ekki farið framhjá neinum að verið er að færa gamla barnaskólann okkar til fyrra horfs þegar glæsileikinn réði ríkjum. Nú er svo komið við endurbygginguna að efri hæð barnaskólans hefur tekið sannkölluðum stakkaskiptum til hins betra undir stjórn Péturs Karls Kristinssonar en hann er yfirsmiður við þetta verk.

Það var gott skref í rétta átt að koma gömlu skólabjöllunni til síns heima en hún hafði verið í fóstri í núverandi skólabyggingu frá því að flutt var úr gamla skólanum árið 1985. Hún mun fá sinn sess í fallega Gamla barnaskólanum okkar sem svo margir Eskfirðingar eiga sínar minningar um. Bjallan ber merki um upphaf Gamla skólans en á hana er letruð dagsetningin 4. nóvember 1910. Þessi merkilega bjalla mun því prýða sitt fyrra heimili héðan í frá.

Það var ánægjuleg stund þegar Pétri Karli var afhent formlega bjallan til varðveislu en það gerðu þau Sigrún Traustadóttir skólastjóri, Arndís Bára Pétursdóttir aðstoðarskólastjóri og Friðrik Á. Þorvaldsson fyrrum aðstoðarskólastjóri.