Glitrandi föstudagur
Í dag, föstudaginn 27. febrúar, var dagur sjaldgæfra sjúkdóma og heilkenna. Í tilefni dagsins klæddust nemendur og starfsfólk Eskifjarðarskóla einhverju glitrandi eða mættu í sínu fínasta pússi - glimmer, pallíettur eða hvað sem skín. Allt sem er litríkt og glitrar minnir okkur á að við erum öll ólík, einstök og dýrmæt.
Félag Einstakra barna hvetur landsmenn til að sýna stuðning, samstöðu og hlýju í verki með því að GLITRA með þeim. Með þátttöku í þessari vitundarvakningu vöktum við athygli á því að um 900 börn og ungmenni á Íslandi lifa með sjaldgæfa sjúkdóma og heilkenni - greiningar sem fáir þekkja eða skilja, en samkennd skiptir öllu máli. Við glitruðum saman og sköpuðum sýnileika. Nemendur á yngsta stigi fengu að koma með sparinesti og nutu þess að gera sér dagamun.
Undanfarnar vikur hafa einnig verið skemmtilegar hefðir í gangi hjá okkur. Á bóndadegi færðu stúlkurnar drengjunum gjöf sem þær höfðu bakað og föndrað. Í dag héldum við áfram þessari hefð í tilefni konudagsins og strákarnir gáfu stelpunum góðgæti og buðu í notalega stund í salnum.
|
Lambeyrarbraut 16 | 735 Eskifjörður Sími á skrifstofu: 4709150 Netfang: sigrun@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Símtölum í síma 470-9150 er svarað frá 7:45 til 13:30. |
Tilkynningar um veikindi nemenda: Á mentor síðu nemenda/ í síma:470-9150/ email: olla@skolar.fjardabyggd.is