Hamar gefur skólanum heyrnarhlífar

Í smíðastofunni er oft mikill erill og hávaði í tækjum. Það er því afar mikilvægt að nota viðeigandi öryggis- og hlífðarbúnað. Heyrnarhlífar eru nauðsynlegar og Vélsmiðjan Hamar færði skólanum þessar glæsilegu hlífar. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir þessa frábæru gjöf. 

Á myndinni má sjá nemendur í 4. bekk með heyrnarhlífarnar.