Heilsudagur 11. september

Heilsudagur 11. september

Við ætlum að hafa heilsudag, 11. september en þá verður skóladagurinn óhefðbundinn. Við förum út í hressilegt haustloftið og höfum gaman saman í leik og útivist.

Það er mikilvægt að nemendur komi klæddir eftir veðri og aðstæðum. Betra er að vera of vel klæddur en of lítið klæddur.

Skóladagurinn hefst kl. 08:10 og lýkur hjá öllum nemendum kl. 13:10.

Dvölin verður á sínum stað eftir hádegi.

Elsta stig – 8.–10. bekkur

Skipulag:

Nemendur í 8.-10. bekk mæta í skólann. Það verður farið með rútu út í sveit og gengið að Karlsskála.

 

Mæting: Við mætum í skólann kl. 08:10

 

Útbúnaður: Hlý föt og góðir skór. Hollt og gott nesti og drykk. 

 

 

Miðstig – 5.–7. bekkur

Nemendur 5.-7. bekkjar mæta í skólann kl. 08:10 á hjólum. Það verður farið hjólandi út í sveit að Hellisá. Farið verður í berjamó og náttúran skoðuð í leiðinni.

Mæting: Við mætum kl. 08:10 í skólann.

Útbúnaður: Góð og hlý föt. Hjól og hjálmar verða að vera til staðar. Hollt og gott nesti og drykk. Ílát fyrir ber.

 

 

 

Yngsta stig – 1.–4. bekkur

Yngsta stig

Nemendur í 1. - 4. bekkjar mæta við sundlaugina og farið í sund og skemmt sér þar. Við borðum nesti saman. Mætum með hollt og gott nesti til að takast á við verkefni dagsins. Gengið til skóla, förum í leiki og fjör á leiðinni fram að hádegisverði. Eftir hádegismat verður farið í fjölbreytta leiki. 

Mæting: Við mætum kl. 08:10 við sundlaugina.

Útbúnaður: Nemendur koma klæddir eftir veðri, með hlý og góð föt. Hollt og gott nesti og drykk. Muna sundfötin.