Heilsudagurinn í Grunnskóla Eskifjarðar

Frá heilsudegi sl. vor
Frá heilsudegi sl. vor

Nú á dögum var haldinn heilsudagur. Þá fengu krakkar að hreyfa sig, hlaupa, labba, hjóla og fara í sund. Það var mikil almenn ánægja með þennan heilsudag bæði hjá kennurum og nemendum. Starfsfólk skólans tók einnig þátt í þessum skemmtilega degi. Er það von okkar allra að þetta verði haldið sem oftast.

 
Frétt skrifuð af þeim Einari Andra og Antoni Berg í valgreininni Skólablað.