Heimsókn í Vilhelm Þorsteinsson
Þann 5. febrúar heimsóttu margir nemendur hið glæsilega fiskiskip Vilhelm Þorsteinsson EA 11. Skipið var smíðað árið 2021 fyrir Samherja. Þetta er stórt, glæsilegt og fullkomið skip, 89 metrar á lengd og 17 metrar á breidd. Burðargetan er vel yfir þrjú þúsund tonn. Vélstjórarnir Stefán og Níels tóku vel á móti okkur og þökkum við þeim mjög fyrir velheppnaða heimsókn. Nemendur voru einstaklega hrifnir af öllu því sem mátti sjá í þessu fallega skipi sem lá við hafnarbakkann hér á Eskifirði. Nokkrir af elstu nemendum eru þegar búnir að sækja um öll pláss sem losna á skipinu um ókomna tíð.
|
Lambeyrarbraut 16 | 735 Eskifjörður Sími á skrifstofu: 4709150 Netfang: sigrun@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Símtölum í síma 470-9150 er svarað frá 7:45 til 13:30. |
Tilkynningar um veikindi nemenda: Á mentor síðu nemenda/ í síma:470-9150/ email: olla@skolar.fjardabyggd.is