Höfðingleg gjöf til skólans

Listamaðurinn Odee afhendir Ástu Stefaníu skólastjóra verkið góða.
Listamaðurinn Odee afhendir Ástu Stefaníu skólastjóra verkið góða.

Listamaðurinn Oddur Friðrik Eysteinsson sem ber listmannsnafnið Odee færði skólanum okkar að gjöf listaverkið Jötunheima. Þetta er glæsilegt 5 metra langt verk unið á ál og hefur skírskotanir vítt og breitt um söguna t.d. í goðheima og staðhætti Austurlands.
Listamaðurinn aðstoðaði við uppsetningu verksins, valdi því stað og afhenti okkur formlega þann 2. júní. Ásta Stefanía skólastjóri tók við verkinu og þakkaði Odee þessa höfðinglegu gjöf og hlýhuginn í garð skólans. Verkið verður nemendum, starfsfólki, foreldrum og okkar fjölmörgu gestum til ánægju á miðhæð skólans. Við hverja skoðun þess kemur eitthvað nýtt í ljós sem vekur forvitni og áhuga um þann heim sem það endurspeglar.
Skólinn er ríkur af fjölmörgum listaverkum og ómetanleg er þessi nýjasta viðbót við safnið, verk sem kallar áhorfendur til sín, aftur og aftur. Við færum Oddi okkar innilegustu þakkir og vonum að honum gangi ætíð vel í öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur.