Nemendur 6. bekkjar buðu foreldrum sínum til íslenskuveislu, fimmtudaginn 29. janúar. Krakkarnir höfðu æft leikrit, ljóð, söng og dans með Frissa íslenskukennara sínum og gripu því tækifærið að gera meira úr hlutunum og setja upp sýningu fyrir ættingja og enda gleðina á Pálínuboði.
Þessi stund tókst afbragðsvel, nemendur stóðu sig eins og hetjur í öllum sínum flutningi. Þetta var auðvitað fyrirtaks æfing fyrir Stóru upplestrarkeppnina sem krakkarnir takast á við í 7. bekk.
Dagskráin samanstóð af samlestri á leikritinu, Hættu að ljúga. Nemendur fluttu gömlu og góð ljóð sem alltaf er vert að rifja upp og gleðjast yfir. Bekkjarkórinn söng síðan lagið frábæra, Vertu þú sjálfur og enduðu á danskennslu þar sem nemendur kenndu þeim eldri að dansa jankadansinn góða.
Það skemmdi svo ekki fyrir að foreldrar báru á borð kræsingar, velheppnað Pálínuboð svona í lok flottrar dagskrár.
Smelltu hér til að skoða myndir
|
Lambeyrarbraut 16 | 735 Eskifjörður Sími á skrifstofu: 4709150 Netfang: sigrun@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Símtölum í síma 470-9150 er svarað frá 7:45 til 13:30. |
Tilkynningar um veikindi nemenda: Á mentor síðu nemenda/ í síma:470-9150/ email: olla@skolar.fjardabyggd.is