Íþróttadagur Fjarðabyggðar
Miðvikudaginn 21. maí verður sameiginlegur Íþrótta- og gleðidagur Fjarðabyggðar.
Þar sem þetta er skóladagur fram á kvöld eiga nemendur 7. – 10. bekkja að mæta í skólann kl. 13:00 miðvikudaginn 21. maí, en ekki kl. 8:00 eins og venjan er. Nemendur leggja af stað kl. 13:35 með rútu frá Eskifirði til Reyðarfjarðar þar sem fjölbreytt dagskrá býður þeirra fram á kvöld. Nemendur eru hvattir til að hafa með sér gott nesti en sjoppuferðir eru ekki leyfilegar.
Athugið: Fyrir þá nemendur sem ætla ekki að fara á dansleik þá er í boði að fara heim með rútu klukkan 18:00. Rútan kemur að skólanum klukkan 18:00. Starfsfólk félagsmiðstöðva Fjarðabyggðar hefur sent út leyfisbréf sem foreldrar fylla út og gildir þá sem leyfisbréf til þess að vera á dansleik. Vinsamlega munið eftir því að fylla það út ef ykkar barn ætlar að vera alla dagskránna.
Nemendum hefur verið kynnt dagskrá dagsins en hún er þessi:
13:00 Mæting í Eskifjarðarskóla
13:35- 14:00 Komið í Fjarðabyggðahöllina
14:00-17:00 Íþróttadagur
17:00-18:00 Kvöldverður – pizzur
18:00 – 18:20 Rútur fara heim fyrir þá sem ætla ekki á ball
Undirbúningur fyrir dansleik
19:00-22:00 Dansleikur í íþróttahúsi Reyðarfjarðar
22:30 Brottför frá Reyðarfirði
22:50 Heimkoma – Rútan stoppar hjá skólanum
Foreldrar eru hvattir til að sækja börn sín þangað.
Hverjum bekk hefur verið úthlutað ákveðnum lit sem auðkenni og eru nemendur í beðnir um að mæta í eftirfarandi litum:
7. bekkur - blár
8. bekkur- rauður
9. bekkur- hvítur
10. bekkur- gulur
Með kveðju frá skólanum
Lambeyrarbraut 16 | 735 Eskifjörður Sími á skrifstofu: 4709150 Netfang: sigrun@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Símtölum í síma 470-9150 er svarað frá 7:45 til 13:30. |
Tilkynningar um veikindi nemenda: Á mentor síðu nemenda/ í síma:470-9150/ email: olla@skolar.fjardabyggd.is