Kjarval á Austurland

Nemendur í 5. og 6. bekk Eskifjarðarskóla fengu þann heiður að taka þátt í listfræðsluverkefninu Kjarval á Austurlandi, sem er á vegum BRAS 2025 í samstarfi við Skaftfell – listamiðstöð Austurlands.

Ferðin fór fram föstudaginn 12. september 2025 þegar 33 nemendur og starfsfólk skólans héldu af stað með rútu til Seyðisfjarðar. Brottför var kl. 08:10 og heimkoma síðdegis.

Fjölbreytt dagskrá

Á Seyðisfirði tók við fræðandi og skapandi dagskrá sem stóð í rúma þrjá tíma með hádegispásu:

  • Leiðsögn um sýninguna „Kjarval á Austurlandi“ þar sem nemendur fræddust um tengsl listamannsins við Austurland.

  • Listasmiðja þar sem nemendur fengu að skoða haustlitina í náttúrunni og litanotkun Kjarvals í verkum hans.

  • Leiðsögn á Tækniminjasafninu bæði úti og inni, þar sem ferðinni lauk á skemmtilegum spurningaleik.

Ferðin heppnaðist afar vel og var bæði skemmtileg og lærdómsrík, þar sem list, náttúra og saga fléttuðust saman í einstaka upplifun.

 

Myndir frá ferðinni