Kynningafundir fyrir foreldra og nemendur í Eskifjarðarskóla

 
Kynningafundir fyrir foreldra og nemendur verða haldnir mánudaginn 24. ágúst, að undanskildum 3.–4. bekk, sem verður með kynningafund föstudaginn 21. ágúst.
 
Á fundunum fara umsjónarkennarar yfir helstu atriði varðandi skipulag skólaársins, nám og starf vetrarins.
 
Skyldumæting er á kynningafundina. Þeir sem ekki komast á boðuðum tíma eru beðnir um að hafa samband við umsjónarkennara og panta sérstakan fund.
 
Foreldrar nemenda í 1. bekk panta tíma í viðtal við umsjónarkennara í Mentor.
 
Föstudagur 21. ágúst
Tími  Bekkur
14:00 3.–4. bekkur
 
Mánudagur 24. ágúst
Tími  Bekkur
10:00 7. bekkur
11:00 8. bekkur
12:00 9.–10. bekkur
13:00 2. bekkur
14:00 6. bekkur
15:00 5. bekkur
 
Við hlökkum til að sjá foreldra og nemendur og eiga gott samtal um skólaárið fram undan.