Nemendur 4. bekkjar, kennarinn þeirra Alicja og góðir gestir bekkjarins áttu mjög skemmtilega stund saman í salnum okkar þriðjudaginn 13. maí. Tilefnið var ærið, sannkölluð uppskeruhátíð hjá bekknum, því nú í nokkrar vikur hafði Alicja kennari æft nemendur af kostgæfni í upplestri, söng og framkomu. Það voru ánægðir gestir þeirra sem fengu að njóta afraksturs þessarar miklu vinnu bekkjarins. Krökkunum var ákaft fagnað í lokin enda mikil og góð vinna sem greinilega var lögð í verkið. Hún tókst svo sannarlega vel, Litla upplestarkeppnin og ekki skemmdi það fyrir að foreldrar nemenda buðu í Pálínuboð að flutningi loknum. Vel gert hjá öllum er að þessari stund komu.
|
Lambeyrarbraut 16 | 735 Eskifjörður Sími á skrifstofu: 4709150 Netfang: sigrun@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Símtölum í síma 470-9150 er svarað frá 7:45 til 13:30. |
Tilkynningar um veikindi nemenda: Á mentor síðu nemenda/ í síma:470-9150/ email: olla@skolar.fjardabyggd.is