Á hverju vori fá yngstu nemendur skólans reiðhjólahjálm að gjöf frá Eimskip, í samstarfi við Kiwanishreyfinguna á Íslandi. Í dag, 13. maí, fengu nemendur 1. bekkjar hjálm að gjöf og foreldrar og forráðamenn eru beðnir um að vera vakandi fyrir því að þegar börn þeirra koma heim með hjálma að aðstoða þau við að stilla þá rétt. Foreldrar eru fyrirmyndir og munum að allir eiga að nota hjálm.
Ein af megináherslum Eimskips er að stuðla að öryggi og forvörnum, hvort sem er í leik eða starfi. Hjálmaverkefnið eitt af þeim verkefnum þar sem Eimskip kemur góðu til leiðar með því að stuðla að öryggi barna í umferðinni.
Lambeyrarbraut 16 | 735 Eskifjörður Sími á skrifstofu: 4709150 Netfang: sigrun@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Símtölum í síma 470-9150 er svarað frá 7:45 til 13:30. |
Tilkynningar um veikindi nemenda: Á mentor síðu nemenda/ í síma:470-9150/ email: olla@skolar.fjardabyggd.is