Föstudaginn 18. september verður haldinn opinn dagur í skólanum. Þennan dag hvetjum við foreldra og forsjáraðila til að koma og kíkja inn í kennslustundir.
Ekki verður sérstök dagskrá heldur verður um hefðbundinn skóladag að ræða hjá nemendum. Foreldrum og forsjáraðilum er frjálst að koma á þeim tíma sem hentar og kíkja inn í kennslustundir hjá börnum sínum.
Við hlökkum til að sjá ykkur í skólanum á föstudaginn!
|
Lambeyrarbraut 16 | 735 Eskifjörður Sími á skrifstofu: 4709150 Netfang: sigrun@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Símtölum í síma 470-9150 er svarað frá 7:45 til 13:30. |
Tilkynningar um veikindi nemenda: Á mentor síðu nemenda/ í síma:470-9150/ email: olla@skolar.fjardabyggd.is