Óskilamunir

Nú hefur safnast fyrir mikið af óskilamunum hér í Eskifjarðarskóla. Allir kassarnir okkar eru fullir. 

Við starfsfólk skólans höfum verið dugleg við að setja óskilamuni

í viðeigandi kassa til þess að gangar skólans séu snyrtilegir. 

Endilega komið við hjá okkur og skoðið hvort börnin ykkar eigi eitthvað sem er í óskilamunakössunum okkar. 

Við munum tæma kassana í Rauðakrossinn eftir foreldradag þann 17. febrúar.

Bestu kveðjur úr skólanum.