Í dag, 18. febrúar, var öskudagur haldinn hátíðlegur. Nemendur mættu í skemmtilegum búningum í skólann og dagurinn hófst á söngstund. Við spiluðum Olsen Olsen. Að því loknu gengu nemendur um bæinn, sungu fyrir fyrirtæki og fengu í staðinn sælgæti og aðrar góðar gjafir. Við færum fyrirtækjaeigendum innilegar þakkir fyrir þeirra dýrmæta framlag og hlýjar móttökur. Að göngu lokinni var leikið á sparkvellinum þar sem kötturinn var sleginn úr tunnunni.
|
Lambeyrarbraut 16 | 735 Eskifjörður Sími á skrifstofu: 4709150 Netfang: sigrun@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Símtölum í síma 470-9150 er svarað frá 7:45 til 13:30. |
Tilkynningar um veikindi nemenda: Á mentor síðu nemenda/ í síma:470-9150/ email: olla@skolar.fjardabyggd.is