6. bekkur hefur að undanförnu unnið skemmtilegt og metnaðarfullt verkefni um plánetur og stjörnur í tengslum við kaflana Geimurinn í Náttúrulega 2 og Jörð í alheimi í Auðvitað – náttúrufræði með Ásdísi kennara.
Mikill tími og alúð hefur farið í verkefnið enda um að ræða mikla nákvæmnisvinnu. Nemendur föndruðu plánetur og unnu jafnframt með fjölbreyttar upplýsingar um þær sem þau söfnuðu saman og settu fram á blaði.
Þetta er afar duglegur hópur sem hefur staðið sig mjög vel í vinnunni. Við hvetjum alla sem eiga leið um skólann til að gefa verkefninu gaum og skoða afraksturinn.
|
Lambeyrarbraut 16 | 735 Eskifjörður Sími á skrifstofu: 4709150 Netfang: sigrun@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Símtölum í síma 470-9150 er svarað frá 7:45 til 13:30. |
Tilkynningar um veikindi nemenda: Á mentor síðu nemenda/ í síma:470-9150/ email: olla@skolar.fjardabyggd.is