Dagana 25. og 26. mars verður haldið skóla- og krílaþing í Eskifjarðarskóla.
Skólaþingið fer fram miðvikudaginn 25. mars og er fyrir nemendur og foreldra í 5.–10. bekk.
Krílaþingið fer fram fimmtudaginn 26. mars og er fyrir nemendur og foreldra í 1.–4. bekk.
Umræðuefni þingsins er: Hvað einkennir góðan skóla?
Þingið hefst kl. 08:10 og stendur í um eina klukkustund, til kl. 09:10.
Við bjóðum foreldra hjartanlega velkomna til að taka þátt, ræða námið og skólastarfið með okkur.
Til að undirbúa okkur sem best er mikilvægt að við vitum fjölda þátttakenda og því biðjum við ykkur að skrá þátttöku hér í formið.
|
Lambeyrarbraut 16 | 735 Eskifjörður Sími á skrifstofu: 4709150 Netfang: sigrun@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Símtölum í síma 470-9150 er svarað frá 7:45 til 13:30. |
Tilkynningar um veikindi nemenda: Á mentor síðu nemenda/ í síma:470-9150/ email: olla@skolar.fjardabyggd.is