Skólabyrjun

Nú fer að styttast í skólabyrjun. Við hefjum leikinn á foreldrasamtölum miðvikudaginn 22. ágúst og kennsla hefst samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 23. ágúst. Foreldrar/forráðamenn hafa fengið tölvupóst með frekari upplýsingum um ýmislegt sem tengist skólaárinu framundan.

Ef einhverjar frekari spurningar vakna ekki hika við að hafa samband í tölvupósti eða í símanúmer skólans, 4761355.