Skólabyrjun - gott að hafa í huga

Skólastarfið er komið vel af stað og hér eru nokkur praktísk atriði sem gott er fyrir foreldra og forsjáraðila að hafa í huga.

Íþróttir og sund
Íþróttir fara fram á Reyðarfirði á mánudögum og þriðjudögum. Sund er á miðvikudögum og fimmtudögum og hefst sundkennsla í næstu viku. Nemendur þurfa að muna eftir viðeigandi íþrótta- og sundfötum.

Heimalestur
Foreldrar og forsjáraðilar skrá heimalestur í Læsi-appinu. Nemendur eiga að lesa í 15 mínútur, fimm sinnum í viku. Farið er yfir heimalestur á mánudögum

Mentor
Í Mentor er hægt að skrá veikindi nemenda og óska eftir undanþágu frá skólavist.

Mæting og inngangur
Skóladagurinn hefst kl. 08:10 og mikilvægt er að nemendur mæti stundvíslega. Nemendur fara inn um aðalinngang skólans. Stæðin fyrir neðan skólann eru eingöngu ætluð til að hleypa börnum út úr bílnum. Vinsamlegast leggið ekki þar til að fylgja börnum inn í skólann.

Fatnaður og nesti
Gott er að merkja fatnað nemenda vel og mikilvægt að þeir komi klæddir eftir veðri. Nemendur eru einnig hvattir til að koma með hollt og gott nesti.

Heimasíða skólans
Á heimasíðu Eskifjarðarskóla má finna allar helstu upplýsingar um skólastarfið, meðal annars matseðil, skóladagatal, áætlanir, fréttir og tilkynningar.

Upplýsingar frá umsjónarkennurum
Umsjónarkennarar senda tölvupóst á föstudögum með upplýsingum um skólastarfið og það sem fram undan er.

Góða helgi