Skólabyrjun í Eskifjarðarskóla

Skólabyrjun í Eskifjarðarskóla

Í ár verða haldnir kynningarfundir fyrir nemendur og foreldra 2. - 10. bekkjar í upphafi skólaárs í Eskifjarðarskóla, dagana 20. og 21. ágúst. Þeir sem sjá sér ekki fært að mæta á kynningafund verða boðaðir í viðtal með umsjónarkennara 22. ágúst einnig er tekið á móti einstaka nemendum sama dag ef ástæða þykir.

Foreldrar og nemendur í 1. bekk bóka viðtalstíma á Mentor með umsjónarkennara, dagana 21. - 22. ágúst.

Miðvikudagur 20. ágúst:
Kl. 10:00 - 8. bekkur - Heiðar Högni í stofu 308.
Kl. 11:00 - 9. bekkur - Heiðar Högni í stofu 309.
Kl. 13:00 - 10. bekkur - Heiður Dögg í stofu 311.

Fimmtudagur 21. ágúst:
Kl. 12:00 - 7. bekkur - Ásdís í stofu 307.
Kl. 13:00 - 2. - 3. bekkur - Petrína Kristín í stofu 228.
Kl. 14:00 - 5. bekkur - Halldór og Aníta í stofu 224.
Kl. 15:00 - 6. bekkur - Marta Magdalena í stofu 201.
Kl. 18:00 - 4. bekkur - Alicja í stofu 227.

Nánari upplýsingar hjá umsjónarkennara.

Skólinn hefst skv. stundarskrá 25. ágúst - mánudag

Hægt er að sjá skóladagatalið inn á heimasíðu skólans.

Með kveðju úr skólanum.