Skólahald mánudaginn 26.september

Á morgun mánudaginn, 26. september, er appelsínugul viðvörun á Austfjörðum, vegna hvassviðris. Ekki er þó talin þörf á að loka leik- og grunnskólum en foreldrar eru beðnir að fylgjast vel með tilkynningum frá skólunum með morgni og meta hvort þeir sendi börnin í skóla.  Veður getur verið slæmt þó ekki sé talin þörf á að leggja niður kennslu og þá er rétt að hafa yngri börnin heima ef ekki er hægt að fylgja þeim bæði í og úr skóla.