Skólahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

Mánudaginn 4. mars var haldin skólahátíð þar sem nemendur 7. bekkjar æfðu sig í upplestri fyrir foreldra og kennara í sal skólans. Nemendur stóðu sig  með eindæmum vel og mega þeir vera stoltir af frammistöðu sinni. Það hefur verið einstaklega gaman að fylgjast með miklum framförum nemenda í framsögn og framkomu og óhætt er að segja að margir sætir sigrar hafi unnist  með þátttökunni því hugrekki og öryggi nemenda við að koma fram hefur einnig aukist til muna. Þó svo að aðeins tveir hafi verið valdir til áframhaldandi þátttöku má segja að sigurvegararnir hafi verið mun fleiri.

Til hamingju nemendur í  7. bekk með glæsilega frammistöðu.

Við óskum Tómasi Steini og Axel Valdemar ásamt varamönnum þeirra Milenu og Brynju Guðbjörgu innilega til hamingju og óskum þeim jafnframt góðs gengis í aðalkeppninni. 

F.v. Brynja Guðbjörg, Tómas Steinn, Axel Valdemar og Milena

 Nemendur 7. bekkjar að lokinni þáttöku í skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar.