Hefð hefur skapast fyrir því í Eskifjarðarskóla að hlaupa skólahringinn tvisvar á skólaári, að hausti og vori. Það var búið að rigna alla vikuna en þegar loksins stytti upp nýttum við tækifærið og skelltum okkur af stað í hausthlaupið föstudaginn 2. október. Nemendur voru hvattir til að taka þátt á sínum forsendum, hvort sem þeir kusu að ganga, skokka eða hlaupa. Allir lögðu sitt af mörkum enda sannast það vel að margt smátt gerir eitt stórt.
Nemendur höfðu 30 mínútur til að fara eins marga hringi og þeir gátu, bæði fyrir bekkinn sinn og skólann í heild. Skólahringurinn er um 800 metra langur. Hann hefst á körfuboltavellinum en þaðan er farið yfir Lambeyrarána, niður Túngötu, fram hjá Sjóminjasafninu og síðan upp á skólavöll.
Mikil stemning var í hlaupinu. Bekkir mættu ýmist í sérstökum litum eða með andlitsmálningu og nokkrir foreldrar létu sjá sig til að hvetja sitt fólk áfram. Spennan var mikil hjá krökkunum, gleðin tók öll völd og keppnisskapið var heldur ekki langt undan. Nemendur í 10. bekk stóðu uppi sem sigurvegarar að þessu sinni en fengu verðuga keppni frá hinum bekkjunum. Á yngsta stigi sigraði 5. bekkur en 1. og 2. bekkur fengu sérstök hvatningarverðlaun. Nemendur í 6. bekk hlupu flesta hringina af öllum bekkjum.
Hér eru myndir frá hlaupinu
|
Lambeyrarbraut 16 | 735 Eskifjörður Sími á skrifstofu: 4709150 Netfang: sigrun@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Símtölum í síma 470-9150 er svarað frá 7:45 til 13:30. |
Tilkynningar um veikindi nemenda: Á mentor síðu nemenda/ í síma:470-9150/ email: olla@skolar.fjardabyggd.is