Í gær var haldið Skólahlaup í annað sinn í björtu og fallegu veðri. Það var sannkallað stuð undir stjórn Halldórs íþróttakennara. Hlaupið byrjaði á körfuboltavellinum, yfir Lambeyrará, niður Túngötu og framhjá Sjóminjasafninu. Nemendur höfðu 30 mínútur til þess að fara eins marga hringi og þau gátu fyrir bekkinn sinn og einnig fyrir skólann. Nemendur voru hvattir til að taka þátt á sínum forsendum, hvort sem það er að labba, skokka eða hlaupa, allt eftir eigin getu.
Það var mikil spenna hjá krökkunum en gleðin tók öll völd en keppnisskapið var ekki langt undan. Nemendur 10. bekkjar stóðu uppi sem sigurvegarar að þessu sinni en þeir fengu verðuga keppni frá hinum bekkjunum. 5. Bekkur stóðu uppi sem sigurvegarar á yngsta stigi. 1. bekkur fengu aukaverðlaun fyrir stjörnu eiginleika.
Markmið skólans var að bæta skólametið sem voru 480 hringir. Samtals hlupu allir bekkir 481 hring. Michael Fjólar og Bjarki Steinn hlupu báðir 8 km eða 8 hringi. Þeir fengu Meistarabikarinn en hann hreppir sá sem hleypur flestu hringina.
Hægt að skoða myndir frá deginum hér.
Lambeyrarbraut 16 | 735 Eskifjörður Sími á skrifstofu: 4709150 Netfang: sigrun@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Símtölum í síma 470-9150 er svarað frá 7:45 til 13:30. |
Tilkynningar um veikindi nemenda: Á mentor síðu nemenda/ í síma:470-9150/ email: olla@skolar.fjardabyggd.is