Skólaslit Eskifjarðarskóla 2026

Skólaslit 1.–9. bekkjar

Í dag, 8. júní, voru haldin hátíðleg skólaslit í sal Eskifjarðarskóla fyrir nemendur í 1.–9. bekk.

Síðustu skóladagarnir voru vordagar þar sem áhersla var lögð á útivist, samveru og fjölbreytt vorverkefni. Veðrið var okkur ekki eins hliðhollt í ár oog því fóru hluti verkefnanna fram innandyra. Þar tóku nemendur þátt í ýmsum skemmtilegum smiðjum og fjölbreyttum verkefnum.

Sigrún Traustadóttir, skólastjóri, setti hátíðina. Að því loknu var skólasöngur Eskifjarðarskóla sunginn, en Guðmann Þorvaldsson, kennari við skólann til margra ára, á heiðurinn af honum. Hér eru myndir af skólaslitunum.

Við þökkum nemendum, starfsfólki og foreldrum fyrir gott skólaár og óskum öllum gleðilegs sumarfrís.

Sumarlestur

Lestrarhestar og bókaormar skólans geta haldið áfram að skrá heimalestur í sumarfríinu og safnað eldum og mínútum í Læsisappinu.

 

Upphafsdagur: 09.06.2026

Lokadagur: 25.08.2026

 

Við hvetjum alla nemendur til að lesa reglulega yfir sumarið, hvort sem það eru bækur, teiknimyndasögur, hljóðbækur eða annað lesefni sem vekur áhuga. Markmiðið er að halda lestrinum við á skemmtilegan hátt og njóta góðra bóka í sumarfríinu.

 

Að loknu tímabilinu verða veittar viðurkenningar fyrir mesta lestrarhestinn og duglegasta bekkinn.