Undanfarnar 10 vikur hafa nemendur í náttúrfræði hjá Heiði Dögg kennara, fengið tækifæri til að taka meira frumkvæði í eigin námi. Nemendur völdu hvað þeir vildu læra og skipulögðu hvernig þeir nálguðust verkefnið og vinna með sitt efni.
Með þessu verkefni í náttúrufræði var lögð áhersla á að efla sjálfstæði, ábyrgð og skapandi hugsun nemenda. Jafnframt fengu þeir tækifæri til að kynnast betur hvernig nám þeirra er metið út frá hæfniviðmiðum aðalnámskrár.
Krakkarnir í 8. – 9. bekk mega vera afar stoltir af vinnu sinni og þeirri framþróun sem þeir hafa sýnt á þessu tímabili.
|
Lambeyrarbraut 16 | 735 Eskifjörður Sími á skrifstofu: 4709150 Netfang: sigrun@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Símtölum í síma 470-9150 er svarað frá 7:45 til 13:30. |
Tilkynningar um veikindi nemenda: Á mentor síðu nemenda/ í síma:470-9150/ email: olla@skolar.fjardabyggd.is