Stóra upplestrarkeppnina – Lokahátíð

Nemendur í 7. bekk um land allt takast árlega á við hið ágæta verkefni sem hefur nafnið, Stóra upplestrarkeppnin. Þar æfa þeir vandaðan upplestur og allt sem honum fylgir. Ásdís Hauksdóttir kennari bekkjarins stýrði sínum nemendum í verkefninu að þessu sinni ásamt Friðriki Þorvaldssyni kennara sem var henni til aðstoðar.

 

Bekkjarhátíðin gekk vel og fulltrúar bekkjarins í lokahátíðinni voru valdar þær Hrafntinna Georgsdóttir, Svanlaug Kara Þórhallsdóttir og Sara Antonía Friðþjófsdóttir.  Þær tókust þar á við aðra fulltrúa skólanna í Fjarðabyggð. Lokakeppnin fór fram í Eskifjarðarkirkju þriðjudaginn 14. apríl.

 

Fulltrúar Eskifjarðarskóla stóðu sig með mikilli prýði og svo fór að Sara Antonía stóð uppi sem sigurvegari keppninnar sem er mikill heiður fyrir hana og skólann okkar. Við óskum okkar stelpum öllum innilega til hamingju með frábæran upplestur, það var mikill sómi að þeirra flutningi.

 

Sigurvegarar Stóru upplestrarkeppninnar 2026 eru:

Sara Antonía Friðþjófsdóttir, Eskifjarðarskóli, 1. sæti

Emma Sólveig Loftsdóttir, Nesskóli, 2. sæti

Rökkvi Halldórsson, Nesskóli, 3. sæti