Treyjudagur og söngstund í Eskifjarðarskóla

Í dag, 4. september, var Treyjudagurinn haldinn í Eskifjarðarskóla. Flestir nemendur og starfsfólk klæddust íþróttatreyjum og sýndu þannig börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra samstöðu.

Við enduðum skóladaginn á söngstund í salnum þar sem nemendur tóku hraustlega undir og sungu af miklum krafti. Það var greinilegt að margir hefðu verið til í að syngja aðeins lengur, en það verður að bíða til næstu söngstundar sem verður næsta föstudag.

Sjáið myndir frá deginum hér.