Föstudaginn 4. september hvetjum við nemendur og starfsfólk til að klæðast íþróttatreyju og sýna þannig börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra samstöðu.
Það skiptir ekki máli hvaða liði þú heldur með - á Treyjudeginum erum við öll í sama liði.
Á Íslandi greinist að meðaltali eitt barn í hverjum mánuði með krabbamein. Á Treyjudeginum klæðist fólk uppáhaldstreyjunni sinni til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.
Áttu ekki íþróttatreyju? Ekkert mál, þá getur þú mætt í bol að eigin vali eða fengið lánað.
Klæðumst treyju föstudaginn 4. september fyrir börn með krabbamein. Við erum öll í sama liði! 👕
|
Lambeyrarbraut 16 | 735 Eskifjörður Sími á skrifstofu: 4709150 Netfang: sigrun@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Símtölum í síma 470-9150 er svarað frá 7:45 til 13:30. |
Tilkynningar um veikindi nemenda: Á mentor síðu nemenda/ í síma:470-9150/ email: olla@skolar.fjardabyggd.is