Upplýsingar varðandi skólahald mánudaginn 7.febrúar

Góðan daginn foreldrar og aðrir forráðamenn, eftirfarandi tilkynningu er að finna inn á heimsíðu Fjarðabyggðar.
Þrátt fyrir slæma veðurspá á morgun mánudag þykir ekki ástæða til að loka skólum í Fjarðabyggð. Þessi ákvörðun er tekin með hliðsjón af veðurspá morgundagsins fyrir austfirði. Því er lagt upp með að skólahald í grunn-, leik- og tónlistarskólum Fjarðabyggðar verði með hefðbundnum hætti á morgun mánudag. Foreldrum er engu að síður í sjálfsvald sett hvort þeir senda börn sín í skóla. Staðan verður endurmetin um klukkan sjö í fyrramálið og tilkynning verður send út í framhaldinu hér á heimasíðu Fjarðabyggðar um hvort loka þurfi skólum. Íbúar eru hvattir til að fylgjast vel með upplýsingum um færð í fyrramálið. Við hvetjum alla foreldra til að fylgjast með heimasíðu Fjarðabyggðar í fyrramálið en þar verða settar inn allar nýjar upplýsingar varðandi skólahald.
Með kveðju úr skólanum 
Sigrún og Jóhanna