Útskrift 2025

Það var duglegur og samheldinn hópur 10. bekkinga sem kvaddi skólann í hátíðlegri athöfn í Valhöll. Útskriftin tókst vel undir stjórn Heiðar Daggar, sem hefur verið umsjónarkennari bekkjarins í þrjú ár. Sigrún Traustadóttir, skólastjóri, flutti nemendum bestu hamingjuóskir með framhaldið á námsferli þeirra, auk nokkurra fyrrum umsjónarkennara hópsins.

 

Katrín María setti saman myndbönd úr skólaferðlaginu í 9. bekk og úr nýlegri útskriftarferð sem nemendur fóru sl. mánudag. Gunnhildur og Haukur héldu ræður, þar sem margt skemmtilegt var rifjað upp frá skólagöngu þeirra. Boðið var upp súpu og brauð ásamt kaffi og kræsingum. Við færum nemendum og foreldrum 9. bekkinga þakkir fyrir að uppvarta alla þá sem í salnum voru og samfögnuðu útskriftarnemendum. 

 

Til hamingju með útskriftina 10. bekkur - framtíðin er björt!