Það var duglegur og samheldinn hópur 10. bekkinga sem kvaddi skólann í hátíðlegri athöfn í Valhöll. Útskriftin tókst vel undir stjórn Heiðar Daggar, sem hefur verið umsjónarkennari bekkjarins á þessu skólaári. Sigrún Traustadóttir, skólastjóri, flutti nemendum bestu hamingjuóskir með framhaldið á námsferli þeirra.
María Rún setti saman myndbönd úr skólaferðlaginu í 9. bekk og úr nýlegri útskriftarferð. Sigurþór og Hekla Bjartey héldu ræður, þar sem margt skemmtilegt var rifjað upp frá skólagöngu þeirra. Við færum nemendum og foreldrum 9. bekkinga þakkir fyrir að uppvarta alla þá sem í salnum voru og samfögnuðu útskriftarnemendum.
Til hamingju með útskriftina 10. bekkur - framtíðin er björt!
|
Lambeyrarbraut 16 | 735 Eskifjörður Sími á skrifstofu: 4709150 Netfang: sigrun@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Símtölum í síma 470-9150 er svarað frá 7:45 til 13:30. |
Tilkynningar um veikindi nemenda: Á mentor síðu nemenda/ í síma:470-9150/ email: olla@skolar.fjardabyggd.is