Vasaskrímsli í Eskifjarðarskóla

Undanfarnar vikur hefur skapandi og skemmtilegt læsisverkefni sett svip sinn á skólastarfið. Miðvikudaginn 25. febrúar var haldinn vel heppnaður Pokémondagur á bóksafninu. Yfir 30 börn mættu á bóksafnið, leituðu að Pokémonum, skoðuðu bækur og leystu fjölbreytt verkefni. Sérstaklega ánægjulegt var að fá góða gesti í heimsókn en þingmaður og menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra kíktu við og kynntu sér verkefnið.

 

Verkefnið er byggt á íslenska Vasaskrímslaverkefninu sem hefur það leiðarljósi að styrkja og styðja við læsi ungra Íslendinga. Íslenska orðið Vasaskrímsli er komið úr enska heitinu ,,Pocket Monsters” eða Pokémon. Lestrarfélag Eskifjarðar keypti Vasaskrímslabækurnar og bjó til fjölbreytt verkefni út frá íslensku nöfnunum. Verkefnið er lestarhvetjandi sem horfir á læsi frá félagslegum sjónarhóli eins og aðalnámskrá gerir ráð fyrir. Verkefnið nýtir nútíma tækni og virkjar nemendur til skapandi lestrarsamvinnu. 


Í þessari viku hafa nemendur í 2., 3. og 5. bekk verið að kynnast heimi vasaskrímslanna og unnið verkefni tengd þeim. Eldri nemendur í 8. - 9. Bekk hafa einnig lagt sitt af mörkum með því að skrifa og búa til teiknimynda sögur fyrir yngri nemendur.

 

Myndir af nemendum og vasaskrímslum