Góðan dag foreldrar og aðrir forsjáraðilar ☁️🌬️
Vegna slæmrar veðurspár gildir eftirfarandi:
🏫 Skólar í Fjarðabyggð eru opnir í dag, 2. mars, en þeim verður lokað í hádeginu samkvæmt nánari ákvörðun hvers skóla.
🚌 Allur skólaakstur í Fjarðabyggð fellur niður mánudaginn 2. mars, vegna veðurspár.
👨👩👧👦 Það er lagt í hendur foreldra og forráðamanna að meta hvort börn eru send í skóla í dag.
✔️ Skólinn tekur alltaf tillit til veðurs við skráningu mætingar.
📩 Ef foreldrar/forráðamenn meta aðstæður þannig að ekki sé óhætt að barn sæki skóla vegna veðurs, er mikilvægt að tilkynna skóla það.
⚠️ Gert er ráð fyrir að veður versni verulega um hádegisbilið og appelsínugul viðvörun taki gildi kl. 13:00.
Við óskum því eftir að börnin verði sótt kl. 12:30.
🌨️ Ef veðrið verður slæmt þegar nemendur fara heim, verða foreldrar/forráðamenn upplýstir um það og nemendum aðeins hleypt út í fylgd fullorðinna.
Með kveðju úr skólanum 🤍
|
Lambeyrarbraut 16 | 735 Eskifjörður Sími á skrifstofu: 4709150 Netfang: sigrun@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Símtölum í síma 470-9150 er svarað frá 7:45 til 13:30. |
Tilkynningar um veikindi nemenda: Á mentor síðu nemenda/ í síma:470-9150/ email: olla@skolar.fjardabyggd.is