Það er nóg um að vera í Eskifjarðarskóla þessa vikuna! Fram undan eru þemadagar, bleikur dagur, skólaþing, Dagur myrkurs og Þjóðaróperan
Þriðjudagur 20. október: Þemadagur undir yfirskriftinni Löndin okkar.
Miðvikudagur 21. október: Þemadagur og bleikur dagur. Allir eru hvattir til að mæta í bleiku!
Fimmtudagur 22. október: Skólaþing undir yfirskriftinni „Öruggur skóli – sameiginleg ábyrgð“. Nemendur í 5.–10. bekk taka þátt og foreldrar eru hjartanlega velkomnir í umræður um forvarnir og skólastarfið. Þingið fer fram kl. 08:10–09:10. Foreldrum gefst einnig tækifæri til að skoða afrakstur þemadaganna. Foreldrar eru hvattir til að skrá þátttöku sína fyrirfram.
Föstudagur 23. október: Dagur tileinkaður Dögum myrkurs. Nemendur eru hvattir til að mæta í svörtum fötum og taka vasaljós með sér. Dagurinn hefst á Olsen Olsen í fyrsta tíma!
Þjóðaróperan: Á föstudaginn fara nemendur á yngsta stigi í kirkjuna kl. 10:00 þar sem Þjóðaróperan verður með fræðsluerindi um óperulist.
Við hlökkum til fjölbreyttrar og skemmtilegrar viku í Eskifjarðarskóla!
|
Lambeyrarbraut 16 | 735 Eskifjörður Sími á skrifstofu: 4709150 Netfang: sigrun@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Símtölum í síma 470-9150 er svarað frá 7:45 til 13:30. |
Tilkynningar um veikindi nemenda: Á mentor síðu nemenda/ í síma:470-9150/ email: olla@skolar.fjardabyggd.is