Vorskemmtun

Þriðjudaginn 21. apríl var hin árlega vorskemmtun Eskifjarðarskóli haldin með pompi og prakt í Valhöll. Að venju voru tvær sýningar á dagskrá, sú fyrri kl. 16:00 og sú síðari kl. 18:00.

Um morguninn fór fram generalprufa þar sem nemendur fengu tækifæri til að sjá atriði annarra bekkja og fullkomna eigið atriði.

Á meðal atriða voru vorlag frá 2.–3. bekk, glæsilegt júrópartý hjá 4. bekk, dansatriði hjá 5. bekk, leikrit hjá 6. og 7. bekk, kraftmikil sviðsframkoma hjá 8.–9. bekk og skemmtileg nútímaútgáfa af Latabæ frá 10. bekk. Þá lauk dagskránni með glæsilegu atriði frá leiklistarvali skólans.

Til hamingju nemendur Eskifjarðarskóla, með glæsilega frammistöðu og vel heppnaða vorskemmtun.