Vorskemmtun 2023 - frestað um óákveðin tíma

Í ljósi aðstæðna, skólahald raskast og við misst tvo æfingadaga fyrir Vorskemmtun,höfum við tekið ákvörðun um að fresta Vorskemmtun um óákveðin tíma. 

Það spáir mikilli rigningu ofan í fannfergið nk fimmtudag þegar Vorskemmtunin átti að vera og við teljum að það sé best í þessum aðstæðum að að fresta Vorskemmtun. Við viljum taka ákvörðun um nýja dagsetningu með starfsfólkinu okkar þegar við komumst aftur í vinnu. Við tilkynnum nýja dagsetningu um leið og hún hefur verið ákveðin.