Fjölbreytt skólastarf í mars
Marsmánuður hefur verið einstaklega viðburðaríkur og erilsamur í Eskifjarðarskóla. Fyrstu tvær vikur mánaðarins þreyttu flestir nemendur í 4.–10. bekk stöðu- og framvindupróf í lesskilningi og stærðfræði, auk þess sem nokkrir nemendur luku sjúkraprófum síðar í mánuðinum. Markmið prófanna er að fá sem skýrasta mynd af stöðu og framvindu nemenda, greina styrkleika þeirra og áskoranir og þannig styðja við markvissa og árangursríka kennslu.
Í byrjun mars fengum við einnig góða heimsókn frá Alþingi þegar fræðsluteymi skrifstofu Alþingis kom til okkar með verkefnið Lýðræðislestin. Nemendur í efstu bekkjum fengu þar tækifæri til að setja sig í spor þingmanna og kynnast því hvernig lög verða til – bæði fróðlegt og skemmtilegt verkefni.
Á sama tíma var mikið um gleði og samveru. Haldið var upp á árshátíð hjá 6.–10. bekk og hátíð hjá 1.–5. bekk þar sem nemendur sýndu fjölbreytt og skemmtileg atriði.
Í þessari viku buðum við foreldra hjartanlega velkomna í skólann á skólaþing og krílaþing. Nemendur í 5.–10. bekk tóku þátt í skólaþingi og nemendur í 1.–4. bekk í krílaþingi. Þar gafst foreldrum og nemendum tækifæri til að ræða skólastarfið, taka þátt í verkefnum og svara spurningum um meðal annars nám, vináttu og samskipti. Samstarf heimilis og skóla er afar mikilvægt og við þökkum öllum sem mættu kærlega fyrir þátttökuna.
Þann 25. mars komu nemendur 7. bekkjarins okkar saman í sal skólans. Tilefnið var hátíðlegt, bekkjarhátíð Stóru upplestrarkeppninnar. Hægt er lesa meira um það hér.
Veðrið hefur svo sannarlega leikið við okkur í mánuðinum og verið afar fjölbreytt – allt frá snjó og byl til sólskins og blíðu.Nú fer að líða að páskafríi og viljum við nota tækifærið og óska nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra páska og ljúfra stunda saman.
|
Lambeyrarbraut 16 | 735 Eskifjörður Sími á skrifstofu: 4709150 Netfang: sigrun@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Símtölum í síma 470-9150 er svarað frá 7:45 til 13:30. |
Tilkynningar um veikindi nemenda: Á mentor síðu nemenda/ í síma:470-9150/ email: olla@skolar.fjardabyggd.is