Mættir : Hilmar, Páll, Eva Dröfn, Magni, Hlynur, Karen, Linda og Sigrún
1) Hilmar leggur fram áætlun um kennslustundafjölda fyrir skólaárið 2017 – 2018.
2) Hilmar leggur fram bréf sem hann hefur þegar afhent fræðslustjóra. Í þessu bréfi fer hann fram á að endurskoðuð verði áætlun um kennslutíma magn fyrir Grunnskólann á Eskifirði fyrir skólaárið 2017 – 2018.
3) Skólaráð samþykkir að senda stuðningsyfirlýsingu.
4) Skóladagatal fyrir skólaárið 2017 – 2018 lagt fram og samþykkt að hálfu skólaráðs.
5) Tilkynnt er breyting sem verður á vetrarfríinu í mars 2017. Áður hafði verið ákveðið að vetrarfrí skildi hefjast föstudaginn 10. mars en vegna óviðráðanlegra aðstæðna hefst vetrarfríið mánudaginn 14. mars.
6) Hilmar tilkynnir að hann sé að láta af störfum sem skólastjóri frá og með 1. ágúst nk.
Fundi slitið.
F.h. skólaráðs - Sigrún Traustadóttir
Mættir: Hilmar, Eva Dröfn, Petra, Linda, Bára, Edda og Sigrún
1) Skóladagatal fyrir árið 2016 – 2017 lagt fram og samþykkt.
2) Kennslutíma magnið fyrir skólaárið 2016 – 2017 lagt fram og Hilmar fer yfir tímaúthlutunina.
3) Hilmar fer yfir þær skimanir sem gerðar hafa verið samkv. aðgerðaráætlun um bættan námsárangur í Fjarðabyggð.
4) Farið er yfir niðurstöður úr nemendakönnun ársins 2015 – 2016 og einnig rennt yfir helstu atriði úr starfsmannakönnun.
5) Búið er að auglýsa eftir kennar og þroskaþjálfa fyrir næsta skóla ár og er umsóknarfrestur til 04.05.16.
Fundi slitið - Sigrún Traustadóttir
Mættir: Hilmar, Eva Dröf, Magni, Petra, Páll og Sigrún
Dagskrá fundarins:
1) Lestrarstefna skólans rædd og verður hún gefin út fljótlega
2) Innra mat, úrbótaáætlun 2015-2016, farið yfir helstu atriðin.
Þetta mun síðan fara á heimasíðu skólans
3) Þróunarverkefni vetrarins kynnt og hóparnir átta kynntir.
Ytra mat, hlutverk skólaráðs: Að fylgjast með stefnu og markmiðum skólans. Hilmar skólastjóri verður áfram formaður skólaráðs.
4) Önnur mál, breytingar á starfsmannahaldi skólans, Jón Svanur hættir og einnig Rúna sem tekur við bókasafninu.
Nemendanet mun koma en ekki hefur ekki verið tímasett.
Fundi slitið - Sigrún Traustadóttir
Mættir : Hilmar Sigurjónsson, Eva Dröfn Sævarsdóttir, Magni Harðarson og Sigrún Traustadóttir.
1) Nemendanet að öllum líkindum tekið inn í haust með ákveðnum skilmálum. Nánar rætt á næsta fundi.
2) Skýrslan frá KPMG og Ingvari Sigurgeirssyni liggur fyrir, ekkert sérstakt sem stendur upp úr varðandi okkar skóla.
3) Betri námsárangur – samþykkt skólastjóranna í Fjarðabyggð
Lestrarstefna skólanna – leiðir til læsis
Skimanir sem settar verða á frá og með hausti 2015
Lestrarstefna skólans – viðbragðsáætlun
Fundi slitið - Sigrún Traustadóttir
Mættir: Hilmar Sigurjónsson, Linda Bragadóttir, Petra Vignisdóttir, Guðrún Edda Gísladóttir, Eva Dröfn Sævarsdóttir, Páll Birgir Jónsson, Sigrún Traustadóttir
1) Farið yfir starfsreglur skólaráðs sem unnar voru veturinn 2013 til 2014. Það vantar 9. aðilan í skólaráðið og samþykkt er að ræða við Magna Harðarson. Hilmar leggur til að formaður skólaráðs komi úr röðum foreldra sem ekki vinna í skólanum og Páll samþykkir að hugsa málið.
2) Hilmar segir frá samkomulagi skólastjóra í Fjarðabyggð um bættan námsárangur nemenda.
3) Skóladagtal ársins 2015 til 2016 lagt fram og lesið yfir.
4) Á næsta fundi skólaráðs mun liggja fyrir skýrsla frá KPMG og Ingvari Sigurgeirssyni um framtíðarskipulag fræðslumála í Fjarðabyggð.
Lestrarstefna skólans rædd.
Nemendanet
Fundi slitið - Sigrún Traustadóttir
Mættir: Guðrún Jónsdóttir, Sóley Arna Friðriksdóttir, Guðrún Arna Jóhannsdóttir, Linda Bragadóttir, Hilmar Sigurjónsson, Hulda Guðnadóttir, Sigrún Traustadóttir.
1) Skóladagatal ársins 2014 til 2015 lagt fram og farið yfir það.
2) Niðurstaða ytra mats kynnt. Hugmynd frá Hilmar um að halda kynningarfund skólaráðs og kalla þar eftir hugmyndum frá foreldrum um hlutverk skólaráðs. Jafnvel að sameina þennan fund öðrum þar sem kynna á niðurstöður úr Olweusarkönnunninni.
3) Starfsreglur skólaráðs lagaðar fram til yfirferðar og athugasemda. Markmiðið er að ganga frá þeim til samþykktar á næsta fundi sem haldinn verður í maí.
Fundi slitið - Sigrún Traustadóttir